Haakaa á Íslandi
Haakaa sílíkon örplástrar fyrir keisaraskurðarör – 6 stk
Haakaa sílíkon örplástrar fyrir keisaraskurðarör – 6 stk
Couldn't load pickup availability
Lýsing
(3 x 0,5 mm + 3 x 1 mm)
Haakaa Sílíkon C-section örplástrarnir eru hannaðir til að veita milda vernd og þægindi á bataferlinu eftir keisaraskurð. Plástrarnir styðja við örið og hjálpa til við að draga úr óþægindum á meðan húðin grær.
Í pakkanum eru tvær mismunandi þykktir sem henta mismunandi stigum bataferlisins.
Þykkari plásturinn (1 mm) veitir mildan en góðan stuðning og þrýsting á fyrstu stigum bataferlisins. Þynnri plásturinn (0,5 mm) er léttari og lítt sýnilegur undir fatnaði á síðari stigum batans.
Plástrarnir eru úr mjúku, sveigjanlegu medical-grade sílíkon geli sem andar vel og fylgir náttúrulegum hreyfingum líkamans. Þeir eru vatnsheldir, hægt að nota í sturtu og vernda örsvæðið fyrir núningi frá fatnaði í daglegu lífi.
Hver plástur er sérpakkaður, endurnýtanlegur í allt að 7 daga og kemur með PP geymsluplötu sem hjálpar til við að halda honum hreinum milli notkunar.
Eiginleikar
- Hannaðir sérstaklega fyrir bata eftir keisaraskurð
- Hjálpa til við að styðja við eðlilegt bataferli örsins og draga úr óþægindum.
- Tvær þykktir fyrir mismunandi stig bataferlisins
- Þykkari plástrar (1 mm) veita mildan þrýsting og stuðning
- Þynnri plástrar (0,5 mm) eru léttir og lítt sýnilegir undir fatnaði
- Framleiddir úr mjúku medical-grade sílíkon geli
- Stór stærð veitir góða þekju yfir keisaraskurðarör
- Gegnsæir og anda vel fyrir þægilega daglega notkun
- Vatnsheldir og hægt að nota í sturtu
- Mild líming sem hentar viðkvæmri húð eftir fæðingu
- Endurnýtanlegir og hagkvæmir til lengri notkunar
- Sérpakkaðir fyrir hreinlæti og þægindi
- Inniheldur PP geymsluplötu fyrir örugga geymslu milli notkunar
Notkun
Áður en notkun hefst:
Notið aðeins þegar skurðurinn er gróinn og saumar eða hefti hafa verið fjarlægð. Þvoið og þerrið hendur og húð vel áður en plásturinn er settur á. Forðist krem, olíur eða önnur efni sem geta haft áhrif á viðloðun plástursins.
- Veldu plástur eftir þörfum. Mælt er með að byrja á þykkari plástrunum og færa sig svo yfir í þá þynnri.
- Opnið varnarfilmuna varlega í miðjunni.
- Setjið plásturinn yfir örsvæðið þannig að hann fylgi lögun skurðarins og þrýstið létt niður.
- Fjarlægið síðan restina af hlífðarfilmunni af báðum hliðum.
- Sléttið plásturinn vel niður þannig að hann liggi þétt við húðina án þess að horn lyftist upp.
Til að húðin venjist plástrinum er gott að byrja á að nota hann í 4–8 klukkustundir á dag og auka síðan notkun smám saman upp í allt að 24 klukkustundir samfellt ef það er þægilegt.
Hægt er að endurnýta hvern plástur í allt að 7 daga. Þvoið hann varlega með volgu vatni og geymið á meðfylgjandi PP geymsluplötu milli notkunar.
Athugið:
Skiptið fyrr um plástur ef hann sýnir slit, skemmdir eða missir viðloðun.
Stærðir
Þykkari plástrar: 50 × 200 × 1 mm
Þynnri plástrar: 50 × 200 × 0,5 mm
Geymsluplata: 157 × 225 mm
Efni
Plástrar: Medical-grade sílíkon gel
Umbúðir: Húðaður medical pappír, PET/PE
Geymsluplata: PP plast
Features
Features
Directions
Directions
Care Instructions
Care Instructions
Caution
Caution
