Refund policy

Kvartanir
Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum leyst málið.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Vinsamlegast athugið að verð getur breyst án fyrirvara. Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Dropp, en einnig er í boði að sækja. 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.