Haakaa á Íslandi
Haakaa Petal mjólkursafnari
Haakaa Petal mjólkursafnari
Couldn't load pickup availability
Safnaðu brjóstamjólk á einfaldan og þægilegan hátt, hvar og hvenær sem er. Haakaa Petal sílíkon mjólkursafnarinn er hannaður fyrir mæður sem vilja nettari og þægilegri leið til að safna mjólkurleka og let-down yfir daginn. Hann situr inni í brjóstahaldara svo þú getur haldið áfram með daginn á meðan hver dropi nýtist.
Ertu þreytt á brjóstainnleggjum sem blotna í gegn? Ólíkt hefðbundnum innleggjum sem draga í sig og sóa mjólkinni gerir Petal mjólkursafnarinn þér kleift að safna mjólkinni án fyrirferðar, óþæginda eða sjáanlegra lína undir fatnaði. Hannaður fyrir þægilega notkun allan daginn.
- Nett og blaðlaga hönnun sem fellur náttúrulega að brjóstinu
- Situr þægilega inni í brjóstahaldara og lítið ber á undir fatnaði
- Innbyggður stuðningur hjálpar til við að halda lögun og minnka líkur á leka
- Tilvalinn fyrir virkar mæður á ferðinni
Fullkominn fyrir daglega notkun
- Safnaðu mjólk í vinnunni eða á ferðinni
- Safnaðu let-down frá hinu brjóstinu meðan barnið drekkur
- Þægilegur til notkunar yfir daginn
- Getur minnkað þörfina fyrir einnota brjóstainnlegg
- Örvar ekki aukna mjólkurframleiðslu eða dregur út meiri mjólk.
Hvernig virkar hann?
Petal safnarinn situr mjúklega inni í brjóstahaldaranum og safnar mjólk frá náttúrulegu let-down og leka án dælingar, snúra eða hávaða.
Mjúkur, öruggur og þægilegur
Petal er framleiddur úr 100% medical-grade sílíkoni sem er mjúkt við viðkvæma húð og öruggt fyrir bæði móður og barn.
Með hverjum Petal mjólkursafnara fylgir Portable Storage Bag (S) – Rust geymslupoki.
Eiginleikar
- Nett og aðlögunarhæf hönnun fyrir þægilega notkun
- Innbyggður stuðningur sem hjálpar til við að halda lögun og koma í veg fyrir leka
- Einstaklega mjúkt og létt sílíkon
- Einföld hönnun í einum hluta sem auðveldar þrif
- BPA-, PVC- og þalatefnalaus efni
*Ef ætlunin er að gefa barninu mjólkina sem safnast er mikilvægt að tæma safnarann reglulega og geyma mjólkina samkvæmt ráðleggingum um örugga geymslu brjóstamjólkur.
Stærðir
Petal: 110 × 110 × 41 mm | 30 ml rúmtak
Hreinsibursti: 6 × 5 × 92 mm
Efni
Petal: Medical-grade sílíkon
Hreinsibursti: Nylon og ryðfrítt stál
Features
Features
Directions
Directions
Care Instructions
Care Instructions
Caution
Caution
